Fotbolti.net
04.09.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Leiðir Inter og Ausilio skilja (Staðfest)

Ausilio myndaður ásamt Antonio Cassano þegar hann var fenginn til Inter sumarið 2012.

Ausilio myndaður ásamt Antonio Cassano þegar hann var fenginn til Inter sumarið 2012.

Canon

Mynd: EPA

Piero Ausilio er búinn að yfirgefa Ítalíumeistara Inter eftir tæp 30 ár hjá félaginu í hinum ýmsu störfum.
Hann fékk stöðuhækkun í desember 2010 þegar hann var gerður að yfirmanni íþróttamála hjá félaginu og hefur síðan þá vakið mikla athygli á sér og unnið til fjölda verðlauna. Hann hefur haft yfirumsjón með mikið af frábærum félagaskiptum sem hafa hjálpað að gera Inter að því stórveldi sem það hefur verið á undanförnum árum. Tveir úrslitaleikir Meistaradeildarinnar og þrír Ítalíumeistaratitlar á síðustu sex árum tala sínu máli.

Ausilio, sem er ekki nema 54 ára gamall, vill takast á við nýja áskorun og er líklegur til að vera ráðinn í ensku úrvalsdeildina.

Dario Baccin hefur verið ráðinn sem yfirmaður íþróttamála hjá Inter og tekur hann við af Piero Ausilio. Baccin hefur verið hægri hönd Ausilio á síðustu árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.