Fotbolti.net
04.09.26 - 15:52
Elvar Geir Magnússon

Ramsdale orðinn fjórði markvörður Dýrlingana

Aaron Ramsdale.

Aaron Ramsdale.

Canon

Mynd: EPA

Tonda Eckert, stjóri Southampton, segir að markvörðurinn Aaron Ramsdale sýni liðinu góðan stuðning þrátt fyrir að vera orðinn fjórði markvörður liðsins.

Þessi 28 ára markvörður yfirgaf Arsenal og fór til Southampton sumarið 2024 eftir að hafa verið varamarkvörður fyrir David Raya. Tímabilið 2024-25 spilaði hann 30 úrvalsdeildarleiki þegar Southampton féll.

Á síðasta tímabili var hann lánaður til Newcastle og lék 23 leiki undir stjórn Eddie Howe. Hann snéri svo aftur til Southampton í sumar en liðið er enn í B-deildinni eftir að hafa verið sparkað úr umspilinu á síðasta tímabili vegna njósnaskandalsins umtalaða.
Ramsdale hefur verið að spila fyrir U21 lið Southampton á þessu tímabili, að eigin ósk. Hann náði ekki að komast frá félaginu í sumarglugganum og er því fastur þar þangað til í janúar að minnsta kosti.

„Við höfum átt opinskátt samtal og hann er enn hluti af hópnum. Hans hlutverk er að sýna liðinu stuðning og hann hefur verið mjög fagmannlegur hingað til," segir Eckert.

Aðalmarkvörður Southampton er Daniel Peretz sem félagið keypti eftir vel heppnaða lánsdvöl á síðasta tímabili. Þessi fyrrum markvörður Bayern München og Hamborgar lék vel á síðasta tímabili. George Long er varamarkvörður og hinn 37 ára gamli Jamie Jomes kom aftur til félagsins á gluggadeginum.

„Daniel er okkar aðalmarkvörður og á það skilið eftir frammistöðuna á síðasta tímabili. Traust okkar á Longy sem varamarkvörður stendur svo áfram," segir Eckert.
Daniel Peretz er aðalmarkvörður Southampton.

Daniel Peretz er aðalmarkvörður Southampton.

Canon

Mynd: EPA

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough12+1025
2Swansea11+823
3West Ham11+1822
4Birmingham11+920
5West Brom11+320
6Stoke City11+219
7Wolves11+318
8Southampton11+1117
9QPR11+317
10Millwall12016
11Portsmouth12016
12Blackburn11+115
13Sheffield Utd12015
14Charlton Athletic12-515
15Wrexham11-114
16Bristol City11-314
17Bolton12-714
18Lincoln City11-1012
19Cardiff City11+111
20Watford11-911
21Norwich12-410
22Derby County12-109
23Burnley11-58
24Preston NE11-154
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.