Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. nóvember 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Áfall fyrir Southampton - Ings frá í nokkrar vikur
Mynd: Getty Images
Southampton hefur fengið slæmar fréttir en Danny Ings verður frá keppni næstu fjórar til sex vikurnar vegna meiðsla.

Ings meiddist gegn Aston Villa um síðustu helgi en við fyrstu skoðun virtust meiðslin ekki vera alvarleg.

Í gær prófaði Ings að æfa en þá kom í ljós að meiðslin voru verri en talið var.

Ings fer í aðgerð í dag vegna meiðslanna og verður frá keppni þar til í desember.

Hinn 28 ára gamli Ings hefur skorað fimm mörk í fyrstu sjö leikjum
tímabilsins en hann skoraði 22 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner