18.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Lewis-Skelly um Man Utd-orðróminn: Heyrði aldrei þennan hávaða

Myles Lewis-Skelly

Mynd: EPA

Myles Lewis-Skelly

Mynd: EPA
Enski miðjumaðurinn Myles Lewis-Skelly segist lítið hafa velt fyrir sér sögusögnum um möguleg félagaskipti frá Englandsmeisturum Arsenal til Manchester United í sumar.
Hinn 19 ára gamli Lewis-Skelly festi sig í sessi í vinstri bakverðinum hjá Arsenal tímabilið 2024-2025 en var í aðeins minna hlutverki á síðustu leiktíð.
Hann var orðaður við Manchester United í sumar en segist lítið hafa tekið eftir þeirri umræðu, enda heldur hann sig að mestu frá samfélagsmiðlum.
Á þessu tímabili hefur Lewis-Skelly byrjað alla fjóra deildarleiki Arsenal þrátt fyrir gríðarlega samkeppni um sæti í liðinu. Hann ræddi við Sky Sports um orðróminn um United og samband sitt við stuðningsmennina.
„Ég er ekki mikið á samfélagsmiðlum þannig að ég heyrði aldrei allan þennan hávaða.“
„Ég treysti mömmu, félaginu mínu og fólkinu sem er í kringum mig og stendur með mér. Þau eru hluti af mér.“
„Það eina sem skiptir máli er hvernig við komum fram við fólk og tölum við það. Við tölum mikið um mikilvægi þess að vera fyrst og fremst góðar manneskjur og það er eitthvað sem við erum stolt af,“ sagði Lewis-Skelly.