17.09.26 - 22:24
Brynjar Ingi Erluson
Maresca: Hefur ekki spilað marga leiki sem 'nía'

Mynd: EPA

Floyd Samba er miðjumaður að upplagi

Mynd: Man City

Mynd: EPA
Enzo Maresca, stjóri Manchester City, var mjög ánægður með frammistöðu hins 17 ára gamla Floyd Samba þrátt fyrir að hann hafi ekki verið að spila í sinni náttúrulegu stöðu.

TENGT EFNI
Sjáðu táninginn skora tvennu fyrir Man City - „Trúði þessu varla“
Samba er miðjumaður að upplagi og hefur leikið þar með yngri liðum Manchester City.
Í síðustu leikjum með U21-liðinu hefur hann hins vegar verið notaður sem nía. Maresca tók eftir því að hann væri með gott markanef og vildi sjá hvernig hann myndi standa sig í þeirri stöðu á þessu stigi.
Hann olli svo sannarlega ekki vonbrigðum. Samba skoraði tvö mörk og kom einnig við sögu í öðru.
„Ekki bara vegna markanna tveggja heldur var frammistaðan í heild sinni mjög góð. Hann hefur ekki spilað marga leiki sem nía en við höfum prófað það í síðustu tveimur eða þremur leikjum.“
„Hann er mjög góður að klára færin. Þetta var góður leikur hjá honum og ég hef sagt það frá fyrsta degi að ég er ánægður með það sem við erum að gera,“ sagði Maresca.
Ítalinn var einnig mjög ánægður með hvernig liðið mætti inn í leikinn og frumraun brasilíska vængmannsins Allan, sem bæði skoraði og lagði upp.
„Þetta var ekki auðveldur leikur og leikmennirnir nálguðust hann af mikilli alvöru og fagmennsku.“
„Þetta var alls ekki auðvelt hjá honum. Þetta var í fyrsta sinn sem hann spilar 90 mínútur og það er alltaf flókið, en það var mikilvægt fyrir hann að fá þessar mínútur.“
„Enskar keppnir eru mjög ólíkar þeim í Suður-Ameríku. Hann hefur nú skorað og lagt upp þannig að hann er mjög ánægður.“
Maresca segir leikmennina sem fengu tækifæri í kvöld einnig eiga eftir að koma við sögu í öðrum keppnum.
„Við eigum eftir að spila marga leiki og erum rétt að byrja tímabilið. Þeir sem spiluðu í kvöld munu einnig spila í úrvalsdeildinni eða Meistaradeildinni,“ sagði Maresca.