Fotbolti.net
17.09.26 - 15:04
Elvar Geir Magnússon
Gatorade bikar Fótbolti.net

Gæsaveiðimaðurinn forfallast - Helgi Mikael dæmir 100 milljóna leikinn

Sveinn Arnarsson greip gæsina.

Sveinn Arnarsson greip gæsina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Selfoss og Haukar mætast í úrslitaleik Gatorade bikars Fótbolta.net, bikarkeppni neðri deilda, klukkan 19 á Laugardalsvelli á morgun, föstudagskvöld.

Það má búast við mjög góðri stemningu enda hafa stuðningsmenn beggja liða ástæðu til að fagna góðu sumri. Þetta eru tvö efstu lið 2. deildar, Haukar unnu deildina og Selfoss tók annað sætið og bæði leika því í Lengjudeildinni á næsta ári.

Upphaflega var tilkynnt að Sveinn Arnarsson myndi dæma leikinn. Sveinn komst í fréttirnar á dögunum eftir að hafa gripið gæsina á Dalvík.

Sveinn forfallast hinsvegar og er Arnar Ingi Ingvarsson kominn á leikinn í hans stað. Jovan Subic og Arnþór Helgi Gíslason verða aðstoðardómarar, Elías Ingi Árnason verður fjórði dómari, Halldór Breiðfjörð Jóhannsson verður eftirlitsmaður KSÍ og Valur Páll Eiríksson eftirlitsmaður Fótbolta.net.
Dómarinn á gæsaveiðum í miðjum leik á Dalvík
TENGT EFNI

Dómarinn á gæsaveiðum í miðjum leik á Dalvík

Þá má geta þess að Helgi Mikael Jónasson mun dæma leikinn á Laugardalsvelli á laugardag. Þegar Þróttur og Fylkir berjast um sæti í Bestu deildinni í úrslitaleik umspilsins. Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í dag.
Helgi Mikael dæmir leik Þróttar og Fylkis.

Helgi Mikael dæmir leik Þróttar og Fylkis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.