04.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Gasperini óánægður með vítaspyrnudóminn: Þær heyra fortíðinni til

Gian Piero Gasperini

Mynd: EPA

Gian Piero Gasperini

Mynd: EPA

Gian Piero Gasperini, þjálfari Roma á Ítalíu, furðar sig mikið á vítaspyrnunni sem Manchester United fékk í leik liðanna á Old Trafford í gær.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Þungu fargi létt af Carrick og Man Utd - PSG skoraði sex
Gasperini var spurður út í frammistöðu Roma og hvernig liðið hefði farið að því að glutra niður tveggja marka forystu og tapa leiknum, líkt og það gerði gegn Real Madrid fyrr í Meistaradeildinni.
„Þetta tap var ekki eins og tapið gegn Real Madrid, þar sem við töpuðum leiknum á síðustu sjö mínútunum þrátt fyrir að ekkert hefði bent til þess að við værum að slaka á,“ sagði Gasperini.
United fékk vítaspyrnu í síðari hálfleiknum sem hleypti liðinu aftur inn í leikinn. Gianluca Mancini braut á Matheus Cunha og var því dæmd vítaspyrna, en Bruno Fernandes þurfti tvær tilraunir til að koma boltanum í netið.
„Þessi vítaspyrna gaf United gríðarlegan meðbyr og við réðum ekki við pressuna sem fylgdi í kjölfarið. Endurkoman var engin tilviljun, en þetta eru tvö ólík dæmi. Í síðari hálfleiknum skorti okkur kraftinn til að koma boltanum á framherjana og undir lokin vorum við búnir að ná betra jafnvægi í leik okkar, en því miður gerði Balerdi mistök.“
Gasperini var þó ekki alls kostar sáttur við vítaspyrnudóminn.
„Þessar ódýru vítaspyrnur heyra fortíðinni til. Það er ekki lengur dæmt á svona á Ítalíu, en við sjáum þetta enn í Evrópu. Það er eitthvað sem pirrar mig.“
„Við gerðum hins vegar klárlega mistök í öðru markinu sem komu í veg fyrir að við næðum í úrslit. Við verðum líka að skoða hvað við hefðum getað gert betur í síðari hálfleiknum,“ sagði Gasperini.