Fotbolti.net
04.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Markvörður Barcelona fór í skógarhlaup og heppinn að meiðast ekki illa

Joan Garcia

Joan Garcia

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Aðeins sólarhringur er liðinn síðan Jesus de Miguel, framherji Tenerife, lést eftir harkalegt samstuð við markvörð Andorra í spænsku B-deildinni. Harmleikurinn hefur vakið mikinn óhug og óhætt er að segja að margir fótboltaáhugamenn muni aldrei líta úthlaup markvarða sömu augum eftir þetta.
Leikmaður lést eftir að hafa farið í hjartastopp í leik á Spáni
TENGT EFNI

Leikmaður lést eftir að hafa farið í hjartastopp í leik á Spáni

Jesus Owono, markvörður Andorra, keyrði af fullum krafti inn í De Miguel sem fór í kjölfarið í hjartastopp og var úrskurðaður látinn tæpum tólf klukkustundum síðar.

Atvikið vakti mikinn óhug um allan heim og hefur í kjölfarið skapast umræða um hvort breyta þurfi regluverkinu til að koma í veg fyrir að slíkur harmleikur endurtaki sig.

Það hefur ítrekað sést í stærstu deildum heims að markverðir taki mikla áhættu þegar þeir koma langt út úr teignum til að stöðva sóknir andstæðinganna. Þar má nefna markverði á borð við Mike Maignan og Manuel Neuer, sem hafa verið óhræddir við að hlaupa langt út úr marki sínu.

Í gær, aðeins sólarhring eftir harmleikinn í B-deildinni á Spáni, kom upp annað stórhættulegt atvik þegar Joan Garcia, markvörður Barcelona, hljóp langt út úr marki sínu til að stöðva hættulega sókn Aston Villa.

Garcia hljóp nánast alla leið að miðjuboganum þar sem hann mætti Emi Buendia, leikmanni Villa, sem fór með fótinn í andlit markvarðarins.

Atvikið var afar hættulegt, en Garcia náði þó að skalla boltann.

Myndir af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.