Tveir íþróttaþættir hafa verið teknir af dagskrá hjá Sýn Sport en niðurskurður hefur verið hjá Sýn vegna slæmrar fjárhagsstöðu.
Í janúar hvarf Varsjáin af dagskrá en þar fjölluðu Stefán Árni Pálsson og Albert Brynjar Ingason um fótboltann á léttu nótunum. Nú hefur Big Ben verið tekinn af dagskrá en báðir þættirnir fóru í gang í haust þegar enski boltinn fór í loftið á Sýn Sport.

Í Big Ben ræddi Guðmundur Benediktsson við Hjálmar Örn Jóhannsson, Kjartan Henry Finnbogason og gesti um fótbolta, handbolta og fleiri íþróttir. Þátturinn var á dagskrá klukkan 22:10 á fimmtudagskvöldum en á þeim tíma í kvöld verður sýnt frá Evrópumótaröðinni í golfi.
Dagskrárgerð í kringum fótbolta hefur verið skorin verulega niður hjá Sýn en fyrir áramót hættu fréttatímar stöðvarinnar um helgar.
„Niðurskurður hefur verið innan raða Sýnar undanfarna mánuði, verið er að taka til í rekstrinum sem hefur ekki staðið undir væntingum. Hefur það best sést á hlutabréfamarkaði en bréf í félaginu hafa lækkað um rúm 40 prósent á einu ári," segir í frétt 433.is um málið.
Athugasemdir