Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
   fim 05. febrúar 2026 23:06
Brynjar Ingi Erluson
Oxlade-Chamberlain fer til Celtic - Gerir samning út tímabilið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Oxlade-Chamberlain er að ganga frá samningaviðræðum við skoska meistaraliðið Celtic en hann mun semja út þetta tímabil. Fabrizio Romano og Sky Sports greina frá þessum tíðindum í kvöld.

Martin O'Neill, stjóri Celtic, talaði um möguleikann á að fá Oxlade-Chamberlain til félagsins á dögunum og sagðist vonast til þess að landa honum.

Viðræðurnar hafa verið mjög jákvæðar og samþykkti leikmaðurinn í kjölfarið að gera samning út þessa leiktíð.

Oxlade-Chamberlain, sem er 32 ára gamall, var síðast á mála hjá Besiktas í Tyrklandi en rifti samningi sínum á síðasta ári og hefur síðustu mánuði æft með Arsenal.

Hann og Mikel Arteta, stjóri Arsenal, spiluðu saman hjá félaginu og því ágætis vinir, en Arteta vildi ekki útiloka möguleikann á að gera stuttan samning við leikmanninn vegna meiðslavandræða á miðsvæðinu.

Það tilboð kom líklega aldrei á borðið til enska leikmannsins sem er nú á leik til Celtic, en hann mun gangast undir læknisskoðun á morgun áður en hann skrifar undir.

Celtic að fá mikinn gæðaleikmann inn í hópinn fyrir titilbaráttuslag gegn Hearts og Rangers.

Oxlade-Chamberlain er uppalinn hjá Southampton en fór til Arsenal árið 2011 þar sem hann lék í sex ár áður en Liverpool keypti hann fyrir 35 milljónir punda.

Hann varð Evrópumeistari árið 2019 og Englandsmeistari ári síðar ásamt því að hafa unnið HM félagsliða, Ofurbikar Evrópu og enska deildabikarinn.
Athugasemdir
banner
banner