Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
banner
   fim 05. febrúar 2026 10:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Telma til Inter (Staðfest)
Kvenaboltinn
Cecilía með myndavélina á EM 2022 og Telma með henni.
Cecilía með myndavélina á EM 2022 og Telma með henni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Telma Ívarsdóttir er gengin í raðir ítalska félagsins Inter á láni frá skoska félaginu Rangers út þetta tímabil.

Hjá Inter hittir hún fyrir tvo leikmenn úr íslenska landsliðinu, markvörðinn Cecilíu Rán Rúnarsdóttir og miðjumanninn Karólínu Leu Vilhjálmsdóttir.

Kaupmöguleiki fylgir lánssamningnum sem gildir út 30. júní.

Telma er 26 ára og er uppalin hjá Breiðabliki. Hún hélt til Rangers eftir tímabilið 2024 en lék fyrri helming tímabilsins 2025 á láni hjá Blikum. Hjá Rangers

Hún á að baki tólf A-landsleiki og hefur komið við sögu í fjórum leikjum með Rangers.

Inter situr í 2. sæti ítölsku deildarinnar, er fimm stigum á eftir Roma eftir tólf umferðir.


Athugasemdir
banner