Áhorfandi á leik Crystal Palace og Everton í ensku úrvalsdeildinni í ágúst síðastliðnum hefur verið sakfelldur fyrir hatursglæp. Hann var dæmdur sekur um kynþáttafordóma í garð Andros Townsend, leikmanns Palace.
Maðurinn heitir Darren Chadwick, er 39 ára gamall og frá Liverpool.
Hann var með kynþáttafordóma í garð Townsend er leikmaðurinn gerði sig klárann í að taka hornspyrnu í 0-0 jafntefli gegn Everton á Selhurst Park.
Öryggisverðir fylgdu Chadwick út af vellinum og var hann handtekinn í kjölfarið.
Honum er gert að greiða að andvirði 270 þúsund íslenskra í sekt og kostnað. Hann fer líka í bann í þrjú ár frá því að mæta á fótboltaleiki.
Kynþáttafordómar eru stórt vandamál í fótbolta, og annars staðar. Vandamál sem þarf að uppræta.
Athugasemdir