Það er risa óveðurský yfir Tottenham þessa dagana en liðið tapaði 3-1 gegn Crystal Palace í kvöld. Þetta var fiimmta deildartap liðsins í röð en liðið er aðeins einu stigi frá fallsæti.
Igor Tudor var ráðinn stjóri liðsins eftir að Thomas Frank var látinn taka pokann sinn en Tudor var að stýra þriðja leiknum sínum í kvöld.
Igor Tudor var ráðinn stjóri liðsins eftir að Thomas Frank var látinn taka pokann sinn en Tudor var að stýra þriðja leiknum sínum í kvöld.
Sérfræðingar eru farnir að velta því fyrir sér hvort Tottenham ætli sér að reka Tudor strax. Paul Robinson, fyrrum markvörður Tottenham, segir að stjórnin sé að íhuga stöðu Tudor.
„Það er þegar mikið talað um að ef þeir ná ekki úrslitum gegn Crystal Palace þá gætu þeir endurskoðað ákvörðunina um knattspyrnustjórann í landsleikjahléinu, sem er ótrúlegt og sýnir bara þá stöðu sem Tottenham er í," sagði Robinson.
Margir stuðningsmenn Tottenham létu óánægju sína í ljós í kvöld og yfirgáfu völlinn í hálfleik þegar staðan var þegar orðin 3-1.
Athugasemdir


