05.06.15 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Scolari tekur við keppinautum Viðars, Sölva og félaga (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Brasilíska goðsögnin Luiz Felipe Scolari er tekinn við Guangzhou Evergrande í kínversku efstu deildinni.
Scolari er búinn að skrifa undir tveggja og hálfs árs samning við félagið sem er í harðri toppbaráttu.
Scolari er búinn að skrifa undir tveggja og hálfs árs samning við félagið sem er í harðri toppbaráttu.
Sölvi Geir Ottesen, Viðar Örn Kjartansson og félagar hans í Jiangsu Sainty eru í 6. sæti deildarinnar, sjö stigum frá Guangzhou, og mæta lærisveinum Scolari þann 12. ágúst.
Scolari var síðast stjóri Gremio í Brasilíu en fyrir það stýrði hann brasilíska landsliðinu á HM síðasta sumar þar sem liðið tapaði 7-1 fyrir Þjóðverjum í undanúrslitum.
Scolari var síðast stjóri Gremio í Brasilíu en fyrir það stýrði hann brasilíska landsliðinu á HM síðasta sumar þar sem liðið tapaði 7-1 fyrir Þjóðverjum í undanúrslitum.
