Fotbolti.net
05.06.15 - 17:25
Magnús Már Einarsson

Tom Cleverley í Everton (Staðfest)

Tom Cleverley í Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tom Cleveley, miðjumaður Manchester United, hefur gert fimm ára samning við Everton.
Samningur Cleverley við Manchester United rennur út um mánaðarmótin og þá ganga félagaskiptin formlega í gegn.

„Það eru margar ástæður fyrir því að stuðningsmenn geta glaðst yfir því að fá Cleverley hingað,\" sagði Roberto Martinez stjóri Everton.

Hinn 25 ára gamli Cleverley var nálægt því að ganga í raðir Everton í fyrrasumar en á endanum fór hann til Aston Villa á láni.

Cleverley hefur á ferli sínum skorað fimm mörk í 76 leikjum með Manchester United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.