Glódís Perla Viggósdóttir og hennar stöllur í Bayern München áttu stórgott tímabil þar sem þær unnu bæði þýsku úrvalsdeildina og þýska bikarinn. Þær komust jafnframt í undanúrslit Meistaradeildarinnar en töpuðu þar gegn verðandi meisturum Barcelona.
„Ég er ógeðslega stolt," sagði Glódís þegar hún ræddi um tímabilið í samtali við Fótbolta.net í gær.
„Í fyrra náðum við sögulegum árangri fyrir félagið og aftur í ár náðum við að gera það sama. Við vorum hundfúl eftir undanúrslitin í Meistaradeildinni því mér fannst við grátlega nálægt. Ég er gríðarlega stolt af tímabilinu og öllu sem við gerðum; við höfum aldrei skorað svona mörg mörk og fengið svona lítið á okkur."
„Við höfum verið að búa til okkar einkenni og okkar leikstíl yfir mörg ár núna. Maður finnur hvað öllum líður betur og betur í því. Við fengum nýjan þjálfara fyrir tímabilið sem kemur með aðeins nýtt, Spánverji sem vill fá meiri einstaklingsgaldra og leyfir leikmönnum sem eru góðir í því að blómstra."
Leiddi liðið út á Old Trafford og Camp Nou
Glódís upplifði margt skemmtilegt á tímabilinu og þar á meðal að leiða lið Bayern út á Old Trafford og Camp Nou í Meistaradeildinni.
„Það var ógeðslega gaman, risaleikvangur og það var ótrúlega gaman að keyra upp að honum og fá að leiða liðið út á Old Trafford var algjör draumur. Líka á Camp Nou þar sem var fullur völlur, algjör draumur að fá að upplifa þetta," sagði Glódís en hversu gott er þetta Barcelona lið?
„Þær eru erfiðar, ógeðslega góðar í því sem þær gera. Maður þarf að eiga algjöran toppleik til að vinna þær. Þetta er mjög gott lið á margan hátt en það var gaman að sjá hvað við vorum ekki langt á eftir."
Glódís á sér draum um að fara enn lengra í Meistaradeildinni.
„Mig dreymir um að spila úrslitaleik Meistaradeildarinnar og hvað þá að vinna Meistaradeildina. Það væri ótrúlega gaman að fá að gera það," sagði landsliðsfyrirliðinn að lokum.


