Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München eru bikarmeistarar í Þýskalandi eftir að hafa slátrað erkifjendum sínum í Wolfsburg, 4-0, á RheinEnergie-leikvanginum í Cottbus.
Íslenski landsliðsfyrirliðinn átti frábæran leik í vörn Bayern.
Bæjarar komust yfir með vítaspyrnumarki Georgia Stanway undir lok fyrri hálfleiks.
Pernille Harder bætti við öðru á 59. mínútu og gerðu þær Momoko Tanikawa og Arianna Caruso út um leikinn á síðasta stundarfjórðungnum.
Glódís er því tvöfaldur meistari með Bayern annað árið í röð. Annað stórkostlegt ár hjá henni, en hún komst einnig í annað sinn í sögunni í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.
????????????????????????????????????????????????????????????????????????? ?????????????????????????? pic.twitter.com/0P1IY4jp5j
— FC Bayern Frauen (@FCBfrauen) May 14, 2026


