PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 16:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndaveisla: Sara mætt heim eftir 18 ára fjarveru
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir er gengin í raðir uppeldisfélagsins Hauka. Hún var kynnt sem nýr leikmaður félagsins á kynningarfundi í knatthúsi Hauka í dag. Hún skrifar undir tveggja ára samning við félagið.

Sara, sem er næstleikjahæsti leikmaður í sögu íslenska landsliðsins og fyrrum fyrirliði þess, lék síðast með Haukum fyrri hluta sumarsins 2008.

Hún er nú mætt aftur heim eftir mjög farsælan atvinnumannaferil og fjöldan allan af titlum.

Hafliði Breiðfjörð var á Ásvöllum í dag og fangaði stemninguna. Það var svo Elíza Gígja Ómarsdóttir tók viðtalið við Söru Björk sem nálgast má hér að neðan.


Slapp
banner