FIFA hefur opinberað hvernig athafnir verða fyrir leiki á HM í sumar en varamennirnir munu þar taka virkan þátt.
Allir í leikmannahópunum munu safnast saman í kringum miðjuhringinn þegar þjóðsögngvarnir verða spilaðir og fyrir aftan þá verða ógnarstórir fánar á vellinum.
Allir í leikmannahópunum munu safnast saman í kringum miðjuhringinn þegar þjóðsögngvarnir verða spilaðir og fyrir aftan þá verða ógnarstórir fánar á vellinum.
Fyrir HM félagsliða í fyrra var hver leikmaður kynntur sérstaklega inn en það þótti ekki heppnast vel, meðal annars þar sem það tók svo langan tíma.
Lukkukrakkar munu fylgja leikmönnum inn á völlinn og koma inn í gegnum sérhannað hlið.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


