Frá vinstri: Halldór Jón Garðarsson (formaður mfl. ráðs Hauka), Sara Björk Gunnarsdóttir og Brynjar Viggósson (formaður Hauka).
Sara Björk Gunnarsdóttir er gengin í raðir uppeldisfélagsins Hauka. Hún var kynnt með pompi og prakt á kynningarfundi á Ásvöllum fyrr í dag.
Sara, sem er næstleikjahæsti leikmaður í sögu íslenska landsliðsins og fyrrum fyrirliði þess, lék síðast með Haukum fyrri hluta sumarsins 2008.
Elíza Gígja Ómarsdóttir ræddi við Söru Björk að fundinum loknum og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Sara, sem er næstleikjahæsti leikmaður í sögu íslenska landsliðsins og fyrrum fyrirliði þess, lék síðast með Haukum fyrri hluta sumarsins 2008.
Elíza Gígja Ómarsdóttir ræddi við Söru Björk að fundinum loknum og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
„Tilfinningin er ótrúlega góð. Geggjað að vera komin aftur á Ásvelli, allt of langt síðan síðast. Ég er mjög spennt fyrir því að byrja.“
Á fundinum sagði Sara að hún hefði verið í sambandi við Hauka síðustu fimm ár. „Ég var ekki alveg tilbúin að koma heim fyrir fimm árum. Ég var ennþá í Lyon þegar Dóri spyr mig hvort ég sé að koma heim,“ sagði Sara létt og hló og vísaði þar í Halldór Jón Garðarsson formann meistaraflokksráðs kvenna hjá Haukum.
Varstu búin að huga að heimför lengi?
„Ég er búin að eiga langan atvinnumannaferil, búin að vera lengi frá fjölskyldu. Maður finnur það á ákveðnum tímapunkti hvenær maður er tilbúinn að koma heim. Ég og Árni fundum það bæði að við viljum vera nær fjölskyldunni. Líka fyrir Ragnar strákinn okkar að komast meira inn í íslenska samfélagið og nær fjölskyldunni.“
„Ég vissi aldrei hvort ég ætlaði að klára ferilinn úti eða ekki. Ég bjóst við því að spila lengi, var búin að hugsa vel um mig og líður ágætlega. Ég var ekki viss um hvort að ég vildi spila heima. En eins og staðan er núna og aðstæður þá er ég ánægð að taka þá ákvörðun um að koma heim og spila með stelpunum á Ásvöllum,“ sagði Sara að lokum.






















