Manchester United hefur samþykkt tilboð Fulham í hinn brasilíska Andreas Pereira. Tilboðið hljóðar upp á tíu milljónir punda.
Pereira hefur ekki rætt um kaup og kjör við Fulham þar sem hann hann var að ljúka keppni í Brasilíu með Flamengo á fimmtudag. Þar var hann á láni frá United.
Pereira hefur ekki rætt um kaup og kjör við Fulham þar sem hann hann var að ljúka keppni í Brasilíu með Flamengo á fimmtudag. Þar var hann á láni frá United.
Pereira er 26 ára gamall og fæddist í Belgíu. Faðir hans er hins vegar frá Brasilíu og ákvað hann að spila fyrir Brasilíu eftir að hafa spilað með U15-U17 landsliðum Belgíu.
Hann gekk í raðir United frá PSV Eindhoven árið 2011 og hefur verið á mála hjá United síðan. Alls hefur hann spilað 75 keppnisleiki fyrir United og skorað fjögur mörk.
Athugasemdir