11.09.26 - 15:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arteta skemmdi viljandi undirbúning fyrir leiki á undirbúningstímabilinu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Arsenal þurfti að aflýsa fréttamannafundi sínum fyrir Meistaradeildarleikinn gegn Napoli í vikunni þar sem mikil töf varð á flugi liðsins frá Englandi til Ítalíu.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var spurður út í undirbúninginn fyrir leiki á fréttamannafundi liðsins í dag.
Stjóri Englandsmeistaranna viðurkenndi að hann hefði viljandi sett upp hindranir í undirbúningi liðsins fyrir leiki á undirbúningstímabilinu til að undirbúa menn fyrir sjálft tímabilið.

„Ég elska þessar áskoranir og ég reyni að búa þær til á undirbúningstímabilinu svo að þegar þær koma upp þá séum við búnir að upplifa þær þá vitum við hvernig það verður. Ef við mætum t.d. mjög seint á völlinn og rútínan er öðruvísi þá þurfa menn að vera tilbúnir að gera hlutina á annan hátt. Það getur gerst að flugi sé aflýst, lestinni seinkar eða það er svo mikil umferð. Ég vil ekki að menn verði örvæntingarfullir. Hvernig getum við nýtt tímann? Ekki kvarta og nota það svo sem afsökun, það hjálpar ekki," sagði Arteta.
Mikel Arteta admitting he deliberately sabotaged Arsenal's pre-season match preparations to help prepare them for the campaign ????
— Hayters TV (@HaytersTV) September 11, 2026
Always one step ahead ???? pic.twitter.com/znPIr7vQxm