Fotbolti.net
05.07.26 - 15:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ancelotti: Neymar er ekki sáttur

Ancelotti: Neymar er ekki sáttur
Canon

Mynd: EPA

Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíu, segir að Neymar sé ekki sáttur með hlutverk sitt í brasilíska hópnum.

Neymar var valinn í hópinn þrátt fyrir að vera meiddur. Hann hefur aðeins spilað 14 mínútur á mótinu til þessa.
„Hann er ekki sáttur en hagar sér mjög vel. Hann æfir mjög vel. Neymar er mjög virðulegur, góður og elskaður af liðsfélögunum," sagði Ancelotti.

„Hann er mikilvægur fyrir hópinn því hann er með gæði og er mjög auðmjúkur. Ég er mjög ánægður með hann. Hann vill auðvitað spila eins og hann hefur alltaf gert."

Það má búast við því að hann byrji á bekknum gegn Noregi í 16-liða úrslitum en leikurinn hefst klukkan 20 í kvöld.

„Það er mikilvægt að hann getur spilað. Enginn veit hversu mikið hann mun spila. Hann er með reynsluna að stjórna mínútunum í leiknum og tempóinu. Þegar ég sé að liðið þarf á honum að halda set ég hann inn á," sagði Ancelotti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.