Fotbolti.net
05.07.26 - 15:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Vicario fer líklega á láni

Vicario fer líklega á láni
Canon

Mynd: EPA

Það er útlit fyrir að Guglielmo Vicario, markvörður Tottenham, sé á leið til Juventus á láni.
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, ætlar að gera Antonin Kinsky að aðalmarkverði liðsins og Vicario vill fara.

Ítalski miðillinn CalcioMercato greinir frá því að Tottenham sé tilbúið að lána Vicario til Juventus með kaupmöguleika.

Launakröfur Vicario gæti hins vegar verið vandamál fyrir Juventus. Ítalska félagið hafði einnig áhuga á Emiliano Martinez, markverði Aston Villa, en Juventus telur að hann sé of dýr.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.