Fotbolti.net
05.07.26 - 13:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England spilar við erfiðar aðstæður í nótt

England spilar við erfiðar aðstæður í nótt
Canon

Mynd: EPA

England mætir Mexíkó á Azteca vellinum í Mexíkóborg í 16-liða úrslitum á HM á miðnætti.

Þetta gæti orðið gríðarlega erfitt verkefni fyrir enska liðið þar sem völlurinn er 2240 metra yfir sjávarmáli.
Í þeirri hæð er loftþrýstingur jarðar lægri, sem gerir loftið þynnra og þýðir að minna súrefni fer út í blóðrásina með hverjum andardrætti.

„Ég finn fyrir þessu, finn fyrir smá hausverk og svaf ekki nægilega vel. Við getum ekki aðlagast þessu en við erum komnir daginn fyrir til að upplifa þetta," sagði Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.