Fotbolti.net
05.07.26 - 14:17
Elvar Geir Magnússon

Mættu með flugelda fyrir utan hótel enska landsliðsins

Brynvarðir lögreglumenn fyrir utan hótel enska landsliðsins.

Brynvarðir lögreglumenn fyrir utan hótel enska landsliðsins.

Canon

Mynd: EPA

Mexíkóska lögreglan stóð vörð um hótel enska landsliðsins í nótt en þangað mættu stuðningsmenn Mexíkó til að reyna að trufla svefn ensku landsliðsmannana.

Á miðnætti mætast Mexíkó og England í 16-liða úrslitum HM, á Azteca vellinum sögufræga í Mexíkóborg.
England spilar við erfiðar aðstæður í nótt
TENGT EFNI

England spilar við erfiðar aðstæður í nótt

Um 300 lögreglumenn höfðu raðað sér allt í kringum lóð hótelsins en þangað mættu stuðningsmenn og hrópuðu 'Mexíkó! Mexíkó! Mexíkó!'

Háværir stuðningsmenn Mexíkó mættu með flugelda, trommur, lúðra og önnur hljóðfæri en þeim var haldið 500 metrum frá hótelinu.

Öryggisteymi enska landsliðsins segir við Daily Mail að hávaðaseggirnir hafi ekki náð að tufla svefn enska liðsins. Leikmenn hafi fengið herbergi sem snúa frá götunni þar sem stuðnngsmennirnir voru mættir og þá hafi þeir fengið eyrnatappa til öryggis.

Mættu með flugelda fyrir utan hótel enska landsliðsins
Canon

Mynd: EPA

Mættu með flugelda fyrir utan hótel enska landsliðsins
Canon

Mynd: EPA

Mættu með flugelda fyrir utan hótel enska landsliðsins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.