Fotbolti.net
05.08.15 - 13:45
Magnús Már Einarsson

Aron Jóhannsson til Werder Bremen (Staðfest)

Aron verður í treyju númer 9 hjá Werder Bremen.

Aron verður í treyju númer 9 hjá Werder Bremen.

Canon

Mynd: Werder Bremen

Þýska félagið Werder Bremen hefur keypt framherjann Aron Jóhannsson frá AZ Alkmaar.

Kaupverið er talið vera í kringum fimm milljónir evra en Aron skrifaði undir fjögurra ára samning við Werder Bremen í dag.
„Þetta er rétt skref fyrir mig. Werder Bremen er frábært félag og ég mun gera mitt besta til að hjálpa félaginu að ná góðum árangri,\" sagði Aron eftir að hann skrifaði undir í dag.

„Það er góð tilfinning að taka næsta skref á ferlinum og augljóslega er gott að fara í þýsku deildina sem er ein sú besta í heimi. Það eru spennandi tímar framundan,\" sagði Aron í viðtali í gær.

„Þegar Werder Bremen sýndi mér áhuga var þetta ekki mjög erfitt val. Maður er að fara í stærra félag í stærri deild. Þetta er skref í rétta átt fyrir mig.\"

Hinn 24 ára gamli Aron ólst upp hjá Fjölni en hann fór til AGF árið 2010 áður en AZ Alkmaar keypti hann árið 2013.

Werder Bremen mætir Schalke í fyrstu umferðinni í þýsku Bundesligunni um aðra helgi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.