Formaður KA: Hundfúl en bendum ekki á einn mann

KA hefur leikið langt undir væntingum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Bjarni Jóhannsson, þjjálfari KA. Liðinu gekk vel í bikarnum en stigasöfnunin í 1. deild hefur verið mikil vonbrigði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA hefur leikið langt undir væntingum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir tímabilið var KA spáð toppsætinu í 1. deild en eftir tap gegn Haukum í gær er liðið tíu stigum frá öðru sæti og Pepsi-draumarnir nánast að engu orðnir.
„Já það er algjörlega stefnan, en ég ræð ekki för minni þarna, það er annarra að taka ákvörðun um það. Við skulum láta nóttina bíða og allt það en auðvitað er maður sár, fyrst og fremst er þetta dæmt á sigrum og stigum og þú verður bara að standa og falla með því,\" sagði Bjarni.
Ekki farið að ræða skipstjóraskipti
Fótbolti.net hafði samband við Eirík Jóhannsson, formann knattspyrnudeildar KA, og spurningin var einfaldlega: Hvernig er staða Bjarna eftir úrslitin í gær?
„Staða Bjarna er alveg óbreytt,\" segir Eiríkur.
Verður hann látinn fara áður en tímabilið er búið?
„Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það.\"
Gengið hefur verið langt undir væntingum?
„Það er alveg ljóst. Við erum ekkert ánægðir með þetta, það liggur alveg fyrir. Þetta er samt ekkert komið á það stig að við séum að benda á einn mann.\"
Hafið þið velt því fyrir ykkur hver ástæðan sé fyrir þessu brösótta gengi?
„Ég held að menn haldi því bara fyrir sig. Ég er ekkert að fara að tala um það núna. Það er samt alveg ljóst að við settum markið hátt og skömmumst okkar ekkert fyrir það. Árangurinn er bara svona. Eins og einhver sagði við mig í gær: Að vera í íþróttum er 90% vonbrigði. Við erum núna í þessum 90% en reynum að klóra okkur yfir í 10%,\" segir Eiríkur.
Þið leggið ekkert árar í bát þrátt fyrir erfiðleikana í sumar?
„Nei alls ekki. Við sem fórum í stjórn og allur pakkinn í kringum KA, við teljum að félagið og deildin séu komin skrefi áfram frá því í fyrra. Við höldum bara áfram að byggja á því. Lið þurfa alltaf að líta áfram. Við höfum metnað en það er ekki alltaf ávísun á uppskeru. Við erum hundfúl yfir því að vera ekki þar sem við ætluðum að vera. Það þýðir bara að við þurfum að leggja harðar að okkur.\"
Samningur Bjarna rennur út eftir þetta tímabil, verður gerð breyting á skipstjóra eftir sumarið?
„Við erum ekkert farnir að ræða það. Við tökum á því þegar þar að kemur,\" segir Eiríkur.
Mikil umræða á Twitter
Talsverð umræða skapaðist á Twitter eftir leikinn í gær þar sem Þórsarar voru til dæmis duglegir að skjóta á granna sína en hér má sjá brot af umræðunni:
Bjarna Jó skipið er strandað (staðfest) #fotboltinet #deitpepsi16
— Hlynur Örn Ásgeirs (@Hlynurasgeirs) August 4, 2015Vonandi tekur Óli Þórðar við þegar Bjarni Jó verður rekinn. Yrði heiður að fá þann meistara á norðurlandið #fotboltinet
— Einar Már Þórólfsson (@Einimar) August 4, 2015Flotta helvítið,tökum bara 11. árið í fyrstu deild 2016.Og höldum Bjarna,góður stöðugleiki sem fylgir. #fotboltinet #fastirífyrstuí11ár
— Aðalsteinn Tryggva (@AdalsteinnTr) August 4, 2015Vona að Bjarni haldi starfinu sínu #fotboltinet
— Hjörtur Davíðsson (@hjorturdavids) August 4, 2015Nokkuð ljóst að einhverjir leikmenn ka skelltu sér til eyja um helgina #þyngsli
— Baldvin Rúnarsson (@baldvinr94) August 4, 2015KA sýndu með þessu marki á 93. mín að þarna er á ferðinni lið sem gefst aldrei upp, flottur hópur sem mun ná langt #pepsi16
— Óðinn Svan Óðinsson (@OdinnSvan) August 4, 2015Er það þá #pepsi17 núna? #blásvellir
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) August 4, 2015Bjarni Jó að fara fá stígvélið?
— Anton Ingi Leifsson (@antonleifs) August 4, 2015#Pepsi16 HAHAHAHAHHAHAAHHAHAHAHHAAHAHAHHAHAAHAHHAAHHAAHAHAHHAHAHAHAHAHhHHHahahahahahahahahahahahahahahahah lol.
— Jóhann Guðmundsson (@joishine) August 4, 2015Hvaða bölsýni er þetta? KA á ennþá möguleika á 46 stigum, sem hafa dugað til að fara upp um deild síðustu þrjú ár. #pepsi16
— Guðmundur Karl (@dullari) August 4, 2015Rekinn á mooooorguuun #pepsi16
— Aðalgeir Axelsson (@alliaxels26) August 4, 2015
Bjarni Jóhannsson, þjjálfari KA. Liðinu gekk vel í bikarnum en stigasöfnunin í 1. deild hefur verið mikil vonbrigði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
