05.09.26 - 11:33
Brynjar Ingi Erluson
Hughes hættur hjá Liverpool (Staðfest)

Michael Edwards hætti hjá Liverpool fyrr á þessu ári og er Hughes einnig horfinn á braut

Mynd: Liverpool

Richard Hughes er hættur sem yfirmaður íþróttamála hjá Liverpool, en þetta er staðfest á heimasíðu félagsins í dag. Hann tekur við sambærilegu starfi hjá Al Hilal í Sádi-Arabíu.
Hughes starfaði hjá Liverpool í tvö ár og varð félagið Englandsmeistari á hans fyrsta tímabili.
Skotinn hefur sætt harðri gagnrýni stuðningsmanna fyrir störf sín á félagaskiptamarkaðnum, sérstaklega í sumar. Áður hafði verið greint frá því að hann tæki við sem yfirmaður íþróttamála hjá Al Hilal að glugganum loknum og samkvæmt blaðamanninum Romain Molina vann Hughes að félagaskiptum fyrir bæði félög í sumar.
Þær fregnir féllu í grýttan jarðveg hjá mörgum stuðningsmönnum Liverpool sem töldu félagið ekki hafa gert nóg á markaðnum. Victor Munoz, Bradley Barcola og Ronald Araujo komu til félagsins en enginn miðjumaður var fenginn og stuðningsmenn töldu einnig þörf á styrkingum í fleiri stöðum.
Liverpool hefur nú staðfest brotthvarf Hughes og er leit hafin að eftirmanni hans.
„Fyrst og fremst vil ég ítreka það sem ég sagði þegar ég kom hingað. Það hefur verið mér mikið stolt að fá tækifæri til að starfa fyrir þetta ótrúlega og einstaka félag. Fyrir það verð ég ávallt þakklátur.“
„Ég vil einnig þakka eigendunum fyrir stuðning þeirra og forystu, öllu starfsfólkinu sem hefur lagt svo mikið af mörkum til að gera Liverpool að því félagi sem það er, leikmönnunum fyrir þeirra ótrúlega framlag og auðvitað öllum þeim fjölmörgu stuðningsmönnum sem standa með liðinu hvar og hvenær sem það spilar.“
„Ég mun alltaf fylgjast með félaginu og styðja það af mikilli ást og óska öllum alls hins besta á þessu tímabili og í framtíðinni,“ sagði Hughes.

Liverpool FC can confirm Richard Hughes has stepped down as sporting director.
— Liverpool FC (@LFC) September 5, 2026
Hughes departs with the best wishes of everyone at LFC having informed the club’s ownership of his desire to seek a fresh challenge.https://t.co/I8MG6lmsMN