27.10.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einn af traustustu leikmönnum ÍBV leggur hanskana á hilluna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðný Geirsdóttir hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna. Guðný lék nánast allan sinn feril með ÍBV en hún kom við sögu í 15 leikjum þegar nýliðarnir höfnuðu í 3. sæti Bestu deildarinnar í sumar.
Hún spilaði með Selfossi sumarið 2021 og spilaði 10 leiki í efstu deild með liðinu.

Tilkynning ÍBV
Guðný leggur hanskana á hilluna
Það eru ekki allar knattspyrnusögur eins. Sumir finna sína hillu snemma, en aðrir þurfa aðeins lengri tíma til að finna sitt rétta hlutverk. Saga Guðnýjar er einmitt þannig.
Eftir að hafa fært sig í markið á unglingsárunum tók við ótrúleg vegferð þar sem hún varð einn af okkar traustustu leikmönnum í markinu. Með frábærri frammistöðu, mikilli vinnu og ótal vörslum hefur hún varið mark ÍBV af stolti í gegnum árin.
Nú er komið að því að Guðný setji hanskana á hilluna og ljúki knattspyrnuferli sínum.
Við hjá ÍBV erum einstaklega þakklát fyrir allt sem Guðný hefur lagt til félagsins, bæði innan vallar sem utan. Hún hefur sýnt að með vinnu, þrautseigju og trú á sjálfri sér er hægt að ná langt.
Takk fyrir allar vörslurnar, allar stundirnar og öll árin í ÍBV-treyjunni, Guðný. Þú skilur eftir þig góð spor í félaginu og verður alltaf ein af okkur.
Takk fyrir allt og gangi þér sem allra best í næsta kafla. Hennar hlutverki innan ÍBV er þó ekki lokið. Við vonumst til að fá að njóta reynslu hennar, þekkingar og góðrar nærveru innan félagsins um ókomin ár. Guðný á alltaf heima hjá okkur í ÍBV og við hlökkum til að sjá hana áfram vera hluta af félaginu.