Fotbolti.net
26.10.26 - 21:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Unai Simon markvörður ársins - Magnaður í liði heimsmeistaranna

Unai Simon markvörður ársins - Magnaður í liði heimsmeistaranna
Canon

Mynd: EPA

Unai Simon, markvörður spænska landsliðsins og Athletic Bilbao, var kjörinn markvörður ársins á Ballon d'Or hátíðinni í kvöld.

Simon er 29 ára og var í markinu hjá spænska landsliðinu þegar liðið varð heimsmeistari í sumar.
Heimsmeistarinn De la Fuente þjálfari ársins
TENGT EFNI

Heimsmeistarinn De la Fuente þjálfari ársins

Varnarleikur spænska liðsins var gríðarlega traustur en hann fékk aðeins eitt mark á sig á HM en það var í 2-1 sigri á Belgíu í 8-liða úrslitum.

Hann bætti met en hann spilaði samtals 649 mínútur án þess að fá á sig mark. Hann bætti met Walter Zenga sem hélt hreinu í 517 mínútur samfleytt árið 1990.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.