26.10.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Brynjar og Elías Karl framlengja á Selfossi

Elías Karl

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías Karl

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Bergsson og Elías Karl Cooper Heiðarsson hafa skrifað undir nýja tveggja ára samninga við Selfoss.
Þeir voru báðir í stóru hlutverki þegar liðið tryggði sér sæti í Lengjudeildinni í sumar en liðið hafnaði í 2. sæti í 2. deild.
Brynjar er miðjumaður og spilaði 23 leiki og skoraði fimm mörk. Elías Karl spilaðin 24 leiki og skoraði sjö mörk.
„Það er mikið fagnaðarefni að tryggja áframhaldandi krafta þessara öflugu leikmanna. Þeir verða mikilvægir í þeirri uppbyggingu sem fram undan er og við hlökkum til að sjá þá halda áfram að gleðja stuðningsmenn Selfoss næstu tvö árin." Segir í tilkynningu frá Selfossi.