Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 05. október 2020 12:28
Magnús Már Einarsson
Everton vill fá Romero eða Gazzaniga
Sergio Romero.
Sergio Romero.
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, ætlar að reyna að fá markvörð til félagsins áður en glugginn lokar í kvöld.

Jordan Pickford gerði mistök gegn Brighton um helgina en hann hefur fengið talsverða gagnrýni undanfarna mánuði.

Ancelotti vill fá markvörð til að veita Pickford alvöru samkeppni.

Everton er sagt hafa rætt við Tottenham um að fá Paulo Gazzaniga og Manchester United um Sergio Romero.

Það ætti að koma betur í ljós á næstu klukkutímunum hvað gerist.
Athugasemdir
banner
banner