Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. október 2022 11:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Huddlestone með lúxus stoðsendingu fyrir Man Utd
Tom Huddlestone hér til hægri.
Tom Huddlestone hér til hægri.
Mynd: Man Utd
Fyrir tímabil bárust þau óvæntu tíðindi Manchester United hefði sótt miðjumanninn Tom Huddlestone.

Huddlestone, sem er 35 ára gamall, á fjóra A-landsleiki að baki en hann hefur spilað fyrir félög á borð við Derby County, Tottenham Hotspur og Wolves.

Hann spilaði með Hull City á síðustu leiktíð þar sem hann lék ellefu deildarleiki í B-deildinni áður en hann var leystur undan samningi undir lok tímabilsins.

Hjá Man Utd kemur hann ekki nálægt aðalliðinu þar sem hann er einungis hluti af U21 liðinu. Hann fær að spila með U21 ára liðinu þar sem hvert lið má spila þremur útileikmönnum sem eru 21 árs eða eldri í hverjum leik. Hann þjálfar einnig í akademíunni, en pælingin með þessu starfi er að ungir leikmenn United fái leiðsögn og þjálfun frá reyndari liðsfélaga, innan sem utan vallar.

Huddlestone kom inn af bekknum þegar U21 lið United vann sigur gegn Barrow í gær. Hann lagði upp sigurmarkið með lúxus sendingu sem má sjá hér að neðan. Það var Argentínumaðurinn Alejandro Garnacho sem gerði sigurmarkið eftir sendingu Huddlestone.


Athugasemdir
banner
banner
banner