17.09.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óskar Hrafn: Sigur andans yfir efninu

Spilar mjög djarft sem aftasti maður KR-inga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Freyr Ólafsson sneri aftur í byrjunarlið KR á sunnudag í fyrsta sinn frá því í fyrstu umferð deildarinnar. Arnar meiddist snemma leiks gegn Keflavík í apríl en var mættur aftur í byrjunarliðið gegn ÍA.
Arnar vakti talsverða athygli á undirbúningstímabilinu fyrir staðsetningar sínar en hann stendur mjög framarlega á vellinum og tekur virkan þátt í spili KR. Þetta minnir á staðsetningu Antons Ara Einarssonar til að byrja með hjá Breiðabliki undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar, nema enn ýktara.
Gegn ÍA kom Arnar í utan á hlaup eins og hægri bakvörður og átti sendingar í átt að vítateig Skagamanna. Arnar fór yfir á vallarhelming ÍA í leiknum sem er almennt sjaldséð frá markvörðum.
Óskar Hrafn er þjálfari KR og var hann spurður út í Arnar. Hvers vegna spilar hann svona framarlega?

TENGT EFNI
„Tel að við getum fengið meira jákvætt en neikvætt út úr því að ég spili svona"
„Hann er til í þetta, getur þetta og leysir þetta vel," segir Óskar Hrafn.
„Ég sé þetta þannig að ef hann er tilbúinn að færa sig svona út fyrir boxið, losa hlekkina á þennan hátt, þá er það mjög fordæmisgefandi fyrir allt liðið. Ef hann er tilbúinn í þetta, af hverju ættu þeir ekki að vera tilbúnir að ganga enn lengra í sínum leik? Þetta tengist líka ekki bara meistaraflokknum, heldur sjá allir iðkendur KR hvernig hann spilar. Þetta eru ekki skilaboð til allra markmanna að fara á vallarhelming andstæðinganna, en þeir sjá að það er hægt að fara út fyrir boxið."
„Arnar er að komast í form og þrátt fyrir að það sé ekki í toppi er tilbúinn að koma svona framarlega og sýnir mikið hugrekki með því. Ég er mjög ánægður með hann og hann litar íslenska boltann."
„Þetta snýst ekki um mörk eða stoðsendingar, en hann átti mjög góða fyrirgjöf á Luke Rae sem var rangstæður og fann Finn Tómas í mjög góðu svæði í leiknum."
„Ég lít á þetta sem sigur andans yfir efninu," segir Óskar.
En hvað með áhættuna?
„Ég get ekki sagt mönnum að gera þetta stundum og stundum ekki. Menn þurfa að finna þetta hjá sér og meta hverja stöðu hverju sinni. Þetta er ekki þannig að þetta er bannað í þessum leik en má í næsta. Auðvitað viljum við alls ekki gefa mönnum tækifæri á að skora ódýr mörk á móti okkur með því að gefa beint á þá með markið opið. Það þarf að vanda sig og það er líka á fleirum en bara markmanninum í hverri stöðu," segir þjálfarinn.