Fotbolti.net
05.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besti leikmaðurinn framlengir á Króknum

Besti leikmaðurinn framlengir á Króknum
Canon

Mynd: Tindastóll

Matheus Gotler hefur skrifað undir nýjan samning við Tindastól.

Hann átti stórkostlegt tímabil síðasta sumar en hann skoraði 13 mörk í 18 leikjum þegar Tindastóll hafnaði í 4. sæti í 3. deild.
Hann er 34 ára gamall brasilískur miðjumaður en hann kom fyrst hingað til lands árið 2022 til að spila með Hetti/Huginn. Hann færði sig yfir til KFA árið 2024 og Kormák/Hvöt árið 2025 og mætti síðan í Tindastól fyrir síðasta tímabil.

Hann var valinn besti leikmaður Tindastóls á lokahófi félagsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.