Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 21:22
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu mörkin: Keflavík hafði betur í sjö marka leik
Mynd: Keflavík
Keflavík 4 - 3 Fram
0-1 Magnús Þórðarson ('5)
1-1 Dagur Ingi Valsson ('19)
1-2 Freyr Sigurðsson ('51)
2-2 Eiður Orri Ragnarsson ('57)
3-2 Davíð Helgi Aronsson ('65)
4-2 Davíð Helgi Aronsson ('80)
4-3 Vuk Oskar Dimitrijevic ('89)

Keflavík og Fram áttust við í gríðarlega skemmtilegum fótboltaleik í A-deild Lengjubikarsins í dag þar sem staðan var jöfn í leikhlé.

Magnús Þórðarson náði forystunni fyrir Fram snemma leiks og jafnaði Dagur Ingi Valsson metin á 19. mínútu í Nettóhöllinni.

Freyr Sigurðsson endurheimti forystu Fram í upphafi síðari hálfleiks en þá skiptu heimamenn um gír og snéru stöðunni við.

Eiður Orri Ragnarsson jafnaði metin á ný áður en Davíð Helgi Aronsson gerði útaf við viðureignina með tvennu.

Vuk Oskar Dimitrijevic minnkaði muninn fyrir Fram á lokamínútunum en það dugði ekki til, svo lokatölur urðu 4-3.

Keflvíkingar enda því deildarkeppni Lengjubikarsins með 10 stig eftir 5 umferðir. Fram lýkur keppni með 6 stig.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner