Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. apríl 2021 11:27
Magnús Már Einarsson
Dino Hodzic í ÍA (Staðfest)
Dino Hodzic í leik með Kára.
Dino Hodzic í leik með Kára.
Mynd: Haukur Gunnarsson
ÍA hefur fengið markvörðinn Dino Hodzic í sínar raðir frá Kára en þetta var staðfest í dag.

„Dino er mikill liðsstyrkur fyrir okkur Skagamenn. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn í ÍA," segir á Facebook síðu ÍA.

Dino er 25 ára Króati sem gekk í raðir ÍA sumarið 2019 en skipti svo í Kára fyrir síðasta tímabil.

Hann hefur hafnað tilboðum úr efri deildum eins og kom fram í viðtali sem hann fór í fyrr á árinu.

Hjá ÍA á hann væntanlega að veita Árna Snæ Ólafssyni samkeppni um markvarðarstöðuna.

Komnir í ÍA:
Alex Davey frá Tampa Bay Rowdies
Dino Hodzic frá Kára
Elias Tamburini frá Grindavík
Hákon Ingi Jónsson frá Fylki
Hrafn Hallgrímsson frá ÍR
Þórður Þorsteinn Þórðarson frá FH

Farnir
Bjarki Steinn Bjarkason til Venezia
Hlynur Sævar Jónsson í Víking Ó. (Á láni)
Lars Johansson
Marteinn Theodórsson í Víking Ó. (Á láni)
Stefán Teitur Þórðarson til Silkeborg
Athugasemdir
banner
banner
banner