Fotbolti.net
06.05.26 - 18:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ætla að bjóða Arteta nýjan samning

Ætla að bjóða Arteta nýjan samning
Canon

Mynd: EPA

Arsenal mun bjóða Mikel Arteta nýjan samning í sumar. Fabrizio Romano greinir frá þessu.

Arteta hefur gert frábæra hluti með liðið á tímabilinu en Arsenal er á leið í úrslit Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn í 20 ár eftir sigur á Atletico Madrid í undanúrslitum.
Arsenal er einnig í harðri titilbaráttu í úrvalsdeildinni. Liðið er með fimm stiga forystu á Man City þegar þrjár umferðir eru eftir en City á leik til góða.

Arteta er einbeittur á að vinna titlana sem í boði eru áður en hann fer að hugsa um framhaldið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.