Fotbolti.net
08.11.26 - 11:45
Brynjar Ingi Erluson

Casillas fokreiður og tekur syni sína úr Real Madrid

Iker Casillas

Iker Casillas

Canon

Mynd: EPA

Iker Casillas, fyrrum markvörður Real Madrid, hefur ákveðið að taka syni sína úr félaginu vegna óánægju með hvernig komið hefur verið fram við þá.
Casillas er einn besti markvörður allra tíma og stóð lengi á milli stanganna hjá Real Madrid.

Hann vann fjölda titla með félaginu og var jafnframt aðalmarkvörður spænska landsliðsins, en það var Florentino Perez, forseti Real Madrid, sem bolaði honum út árið 2015.

Þau mál hafa lengi setið í Casillas en hann missti upprunalega sæti sitt undir stjórn Jose Mourinho áður en Carlo Ancelotti tók við og setti hann aftur í byrjunarliðið. Casillas var þó ekki sá sami og lék hann aðeins eitt tímabil undir Ancelotti áður en hann var látinn fara.

Spænski miðillinn AS greinir nú frá því að Casillas hafi tekið tvo syni sína úr Real Madrid og fært þá yfir til Leganes. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að Martin, eldri sonur hans, missti sæti sitt í liðinu og hvorugur bræðranna var valinn til að taka þátt í móti í Orlando.

Bræðurnir höfðu verið hjá Real Madrid í tvö ár, en Casillas var afar ósáttur við hvernig komið var fram við þá og ákvað því að færa þá til Leganes.

Báðir eru markverðir og þykja efnilegir. Martin stóð sig vel með U12 ára liðinu á heimsmeistaramóti, en Lucas, yngri sonurinn, vakti einnig athygli fyrir frammistöðu sína gegn Barcelona þar sem hann varði nokkrar vítaspyrnur.

Erfitt er að segja hvort ákvörðun Casillas snúist eingöngu um meðferðina á sonum hans eða hvort gömul sár frá endalokum ferils hans hjá Real Madrid spili þar einnig inn í.

Hann telur hins vegar að hagsmunum þeirra sé betur borgið hjá Leganes, sem býr yfir góðri unglingaakademíu þar sem þeir fá tækifæri til að þroskast áfram sem markverðir.
Casillas fokreiður og tekur syni sína úr Real Madrid
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.