Íslandsmeistarar Breiðabliks eru með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í Bestu deild kvenna eftir sigur á Víkingi í kvöld. Agla María Albertsdóttir sá til þess að Breiðablik var með forystuna í hálfleik þegar hún skoraði eftir aðeins þriggja mínútna leik.
Elísa Viðarsdóttir fann Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttir inn á teignum eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik. Hrafnhildur var alein og skoraði af öryggi annað mark Blika.
Barbára Sól Gísladóttir bætti þriðja markinu við eftir frábæran undirbúning Hrafnhildar.
Stuttu síðar slapp Dagný Rún Pétursdóttir ein í gegn og minnkaði muninn en strax í kjölfarið skoraði Ólöf Sigríður Kristinsdóttir fjórða mark Breiðabliks og fór langt með að tryggja liðinu sigurinn. Freyja Stefánsdóttir klóraði í bakkann fyrir Víking en nær komust þær ekki.
Breiðablik endurheimti toppsætið sem ÍBV tók með sigri á Val fyrr í dag en Víkingur er í 7. sæti með 3 stig.
FH fékk Grindavík/Njarðvík í heimsókn. Nia Raisa Christopher kom FH yfir snemma leiks þegar hún slapp ein í gegn og fór framhjá Genevieve Jae Crenshaw, markverði Grindavíkur/Njarðvíkur.
FH fékk tvö góð færi í fyrri hálfleiknum en Genevieve varði frábærlega í bæði skiptin. Gestirnir jöfnuðu metin undir lok fyrri hálfleiks þegar Danai Kaldaridou kom boltanum í netið.
FH fékk vítaspyrnu eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Natasha Anasi fékk boltann í höndina. Nia Raisa Christopher steig á punktinn en Genevieve varði boltann út í teiginn, Ingibjörg Magnúsdóttir náði boltanum og skoraði og kom FH aftur yfir.
Þetta var fyrsti sigur FH-inga sem eru í 5. sæti með fjögur stig en Grindavík/Njarðvík er í 6. sæti með þrjú stig.
Víkingur R. 2 - 4 Breiðablik
0-1 Agla María Albertsdóttir ('3 )
0-2 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('56 )
0-3 Barbára Sól Gísladóttir ('69 )
1-3 Dagný Rún Pétursdóttir ('76 )
1-4 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('77 )
2-4 Freyja Stefánsdóttir ('83 )
Lestu um leikinn
FH 2 - 1 Grindavík/Njarðvík
1-0 Nia Raisa Christopher ('8 )
1-1 Danai Kaldaridou ('41 )
1-1 Nia Raisa Christopher ('64 , misnotað víti)
2-1 Ingibjörg Magnúsdóttir ('64 )
Lestu um leikinn
Besta kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Breiðablik | 4 | 4 | 0 | 0 | 11 - 4 | +7 | 12 |
| 2. ÍBV | 4 | 4 | 0 | 0 | 12 - 7 | +5 | 12 |
| 3. FH | 4 | 2 | 1 | 1 | 6 - 5 | +1 | 7 |
| 4. Þróttur R. | 4 | 2 | 0 | 2 | 6 - 5 | +1 | 6 |
| 5. Grindavík/Njarðvík | 4 | 2 | 0 | 2 | 6 - 6 | 0 | 6 |
| 6. Víkingur R. | 4 | 2 | 0 | 2 | 7 - 8 | -1 | 6 |
| 7. Stjarnan | 4 | 1 | 1 | 2 | 6 - 6 | 0 | 4 |
| 8. Valur | 4 | 1 | 0 | 3 | 6 - 9 | -3 | 3 |
| 9. Þór/KA | 4 | 0 | 2 | 2 | 4 - 7 | -3 | 2 |
| 10. Fram | 4 | 0 | 0 | 4 | 3 - 10 | -7 | 0 |



