Borgarstjórinn í Madríd ýjar að því að brögð hafi verið í tafli þegar Arsenal vann Atletio Madrid 1-0, og einvígið samtals 2-1, í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Leikirnir tveir voru jafnir og æsispennandi en borgastjóri Madrídarborgar, Jose Luis Martínez-Almeida, er klettharður stuðningsmaður Atletico og liggur ekki á skoðunum sínum.
Leikirnir tveir voru jafnir og æsispennandi en borgastjóri Madrídarborgar, Jose Luis Martínez-Almeida, er klettharður stuðningsmaður Atletico og liggur ekki á skoðunum sínum.
„Þegar ég sá dráttinn bjóst ég við því að við myndum mæta Arsenal en ég hafði rangt fyrir mér. Við mættum UEFA. Það var alveg ljóst að UEFA vildi ekki fá Atletico Madrid í úrslitaleikinn," segir Martínez-Almeida en hann er reiður út í Daniel Sibert dómara.
„Það er óskiljanlegt að þeir hafi látið þýskan dómara á leikinn þegar Spánn og Þýskaland eru að spila um fimmta sætið í Meistaradeildinni. Hverjir aðrir en UEFA myndu detta það í hug að hafa Þjóðverja með flautuna og Þjóðverja í VAR-herberginu?"
„Í gær komu upp atvik sem réðust á fyrirfram ákveðnum ákvörðunum sem miðuðu að því að vinna gegn Atletico Madrid."
Atletico Madrid gerði oftar en einu sinni tilkall til þess að fá vítaspyrnu. Meðal annars þegar Riccardo Calafiori ýtti við Giuliano Simeone en aðstoðardómarinn flaggaði rangstöðu.
„Við sáum síðar á samfélagsmiðlum að þetta var ekki rangstaða. Í útsendingu þar sem eru svona margar sjónvarpsvélar, af hverju var ekki sýnd almennileg endursýning? Vegna þess að þetta var ekki rangstaða en þeir vildu ekki viðurkenna það," segir Martínez-Almeida.
Hann var hinsvegar ósáttastur með að ekki hafi verið dæmt víti þegar Calafiori steig á Antoine Griezmann. Í staðinn var dæmd aukaspyrna á Marc Pubill á undan fyrir meint brot á Gabriel.
„Þetta átti að vera víti, það er augljóst. Pubill braut ekkert af sér. Og svo er uppbótartíminn skýr sönnun þess að dómarinn vildi að leiknum lyki eins fljótt og auðið er og að Arsenal færi í úrslitaleikinn í Búdapest í stað Atletico Madrid.“
„Það er hægt að sigra Arsenal á 180 mínútum en þú getur ekki unnið UEFA. UEFA setti allt kerfið í gang til að koma í veg fyrir að Atletico Madrid kæmist áfram í leiknum í gær, og það var dómarinn sem sá um framkvæmdina."
???? 'RAJADÓN' de ALMEIDA, alcalde de MADRID, por el ARBITRAJE del ATLETI-ARSENAL:
— El Chiringuito TV (@elchiringuitotv) May 6, 2026
???? "La UEFA ha dejado claro que no QUERÍA que el ATLETI estuviese en la FINAL de la CHAMPIONS". pic.twitter.com/9MHh13kZu9



