Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
Kristín Dís: Náðum að sigla þessu heim
Einar Guðna: Ég þoli ekki að tapa
Gylfi Tryggva: Þetta er skandall, bara algjör skandall að dæma vítaspyrnu
Ian Jeffs: Sanngjörn úrslit
Guðni: Ef ekki hefði verið fyrir markmann Grindavík/Njarðvík þá hefði sigurinn orðið stærri
Ída Marín: Þá er þetta stress farið að ná fyrsta sigrinum og við getum bara spilað okkar leik
Voru mjög daprar í fyrri hálfleik - „Ekki eins og við í Þór/KA viljum gera hlutina"
Óskar Smári: Förum að verja eitthvað sem er ekki komið
Systurnar svekktar - „Hann átti að láta okkur heyra það"
Hildur María svekkt: „Þetta var bara stöngin út“
Sigríður Theódóra: „Það var aldrei spurning um annað en að vera þar áfram“
Elmar Atli: Of graðir inn í seinni hálfleik
Heimir: Fórum í gildrurnar sem þeir settu fyrir okkur
Kennie: Pirraði mig mjög mikið
Úlfur Ágúst: Veit ekki hvað gerist í hálfleik
Rúnar Kristins: Ekki fallegur fótbolti en ég er með marga klóka menn
Jói Kalli: Gríðarlega svekktur
Aron þreyttur: Kærkomið að komast inn á völlinn aftur
Halli vildi tvö víti: Þeir fá að hanga alltof mikið í Ljúbba
Sölvi: Reynsluleysi hjá mér að gleyma að ég var búinn að skipta markmanninum inn á
   mið 06. maí 2026 22:17
Stefán Marteinn Ólafsson
Guðni: Ef ekki hefði verið fyrir markmann Grindavík/Njarðvík þá hefði sigurinn orðið stærri
Kvenaboltinn
Guðni Eiríksson þjálfari FH
Guðni Eiríksson þjálfari FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH vann sinn fyrsta sigur í Bestu deild kvenna í kvöld þegar þær lögðu nýliða Grindavík/Njarðvík af velli á Kaplakrikavelli í 3. umferð Bestu deild kvenna.


Lestu um leikinn: FH 2 -  1 Grindavík/Njarðvík

„Ég er bara gríðarlega ánægður með þrjú stig og ánægður með framlag FH liðsins" sagði Guðni Eiríksson þjálfari FH eftir sigurinn í kvöld.

„Mér fannst við gera þetta mjög vel. Við sköpuðum urmul af færum og ef ekki hefði verið fyrir markmann Grindavík/Njarðvík þá hefði sigurinn orðið stærri" 

FH komst oft í frábærar stöður og var Guðni svekktur að ná ekki að nýta þær betur. 

„Já auðvitað, sérstaklega ef þetta hefði talið. Við erum búnar að spila leiki sem að við höfum ekki nýtt færin okkar og svo fengið þetta í andlitið" 

„Við erum ekki búnar að fá á okkur mörg færi FH liðið í sumar eða frá því að tímabilið hófst en allir boltar hafa einhvern veginn lekið inn. Þetta hefur verið helvítis barningur en mér fannst sóknarleikur liðsins góður. Við sköpuðum okkur aftur fjölmörg góðar stöður og góð færi en hún átti stórleik í markinu þannig það verður ekki tekið af henni" 

„Ég er mjög ánægður með leikinn, ég er mjög ánægður með innkomur leikmanna, við sýnum breidd. Við sendum leikmenn inn og þær breyta leiknum. Það er það sem maður vill sjá" sagði Guðni Eiríksson.


Besta kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 3 3 0 0 8 - 2 +6 9
2.    ÍBV 3 3 0 0 10 - 7 +3 9
3.    Þróttur R. 3 2 0 1 5 - 3 +2 6
4.    Stjarnan 3 1 1 1 5 - 4 +1 4
5.    FH 3 1 1 1 4 - 4 0 4
6.    Grindavík/Njarðvík 3 1 0 2 4 - 5 -1 3
7.    Víkingur R. 3 1 0 2 6 - 8 -2 3
8.    Valur 3 1 0 2 4 - 6 -2 3
9.    Þór/KA 3 0 2 1 4 - 5 -1 2
10.    Fram 3 0 0 3 3 - 9 -6 0
Slapp
banner