Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
banner
   lau 06. júní 2026 22:07
Brynjar Ingi Erluson
Bernardo staðfestir áhuga Barcelona - „Margir möguleikar í stöðunni“
Mynd: EPA
Portúgalinn Bernardo Silva segist ekki hafa tekið ákvörðun um framtíðina en gaf til kynna að hún gæti legið fyrir á næstunni.

Bernardo, sem mun formlega yfirgefa Manchester City um mánaðamótin, hefur verið sterklega orðaður við Barcelona á Spáni.

Atlético Madríd, Juventus og Galatasaray hafa einnig sýnt honum áhuga ásamt félögum í Sádi-Arabíu.

Hann staðfestir áhuga Barcelona en segir að ekkert samkomulag sé í höfn.

„Barcelona er einn af möguleikunum en ég hef ekki tekið endanlega ákvörðun varðandi framtíðina. Það eru margir möguleikar í stöðunni og ég ber virðingu fyrir öllum félögunum sem hafa áhuga.

Ég mun reyna að finna lið sem vill fá mig og þar sem ég finn fyrir væntumþykju. Það er mjög mikilvægt og daginn sem ég tek ákvörðun munu allir vita það,“
sagði Bernardo.
Slapp
banner
banner