Fotbolti.net
06.07.26 - 12:48
Elvar Geir Magnússon

FIFA neitar að gefa frekari útskýringar

Raphael Claus gefur Folarin Balogun rautt.

Raphael Claus gefur Folarin Balogun rautt.

Canon

Mynd: EPA

Sú ákvörðun FIFA að aflétta leikbanni Folarin Balogun, lykilmanns í bandaríska landsliðinu hefur skiljanlega orðið að risa fréttamáli. Mörgum spurningum er ósvarað og erfitt að fá svör við þeim.

Balogun, sem er markahæsti leikmaður Bandaríkjanna á HM með þrjú mörk, fékk rautt spjald gegn Bosníu og Hersegóvínu og hefði átt að vera í banni þegar Bandaríkin og Belgía mætast í kvöld.

Leikbannið var fellt niður eftir afskipti frá Hvíta húsinu en Donald Trump forseti Bandaríkjanna hafði samband við Gianni Infantino, forseta FIFA, til að ræða um leikbannið.
UEFA gagnrýnir FIFA harðlega - „Grafið undan trúverðugleika keppninnar“
TENGT EFNI

UEFA gagnrýnir FIFA harðlega - „Grafið undan trúverðugleika keppninnar“

BBC og fleiri fjölmiðlar hafa reynt að fá nánari útskýringar á þessari ákvörðun en ekki fengið. Það er bara bent á 27. grein í agareglum FIFA.

27. greinin heimilar FIFA að „fresta agaviðurlögum að hluta eða öllu leyti“ án þess að það sé nánar útskýrt. FIFA getur í raun tekið hvaða ákvörðun sem er án þess að þurfa að uppfylla nokkur önnur skilyrði.

Þessi grein hefur aldrei áður verið notuð á HM.

Annar í sögunni sem þarf ekki að taka út bann
Balogun er annar leikmaðurinn í sögu HM sem getur spilað næsta leik á mótinu eftir að hafa fengið rautt spjald. Það hafa 189 rauð spjöld verið gefin í sögu heimsmeistaramótins og aðeins tveir leikmenn sloppið við bann.

Hinn leikmaðurinn er Garrincha hjá Brasilíu 1962 sem fékk rautt spjald gegn Síle í undanúrslitunum en spilaði í sigrinum gegn Tékkóslóvakíu í úrslitum. Þá var hinsvegar ekki sjálfkrafa leikbann, það var sérstök aaganefnd sem gat dæmt leikmenn í bann eftir skýrslu dómara.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.