Fotbolti.net
07.09.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Real bara með tvo miðjumenn gegn Inter

Real bara með tvo miðjumenn gegn Inter
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid er að glíma við gríðarleg meiðslavandræði á upphafi tímabils og er José Mourinho þjálfari aðeins með tvo liðtæka miðjumenn fyrir stórleik gegn Ítalíumeisturum Inter í miðri viku.
Stórveldin eigast við í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar og verður Real án Aurélien Tchouaméni og Tiago Pitarch sem eru að glíma við meiðsli. Þá eru Bernardo Silva, Arda Güler og Eduardo Camavinga allir í leikbanni.

Güler og Camavinga voru reknir af velli í dramatísku tapi í 8-liða úrslitum gegn FC Bayern á síðustu leiktíð og taka út leikbann á miðvikudaginn, á meðan Bernardo fékk að líta rauða spjaldið gegn Real Madrid þegar hann var ennþá leikmaður Manchester City. Bernardo varði boltann með hendi innan vítateigs og var rekinn í sturtu áður en Vinícius Júnior skoraði úr vítaspyrnu.

Federico Valverde og Jude Bellingham eru því einu liðtæku miðjumenn Madrídinga fyrir stórleikinn. Mögulegt er að hinn tvítugi Jorge Cestero fái tækifæri gegn Inter, eða að Brahim Díaz verði færður aftar á völlinn til að fylla í skarðið á miðjunni.

Auk vandræða á miðjunni eru Rodrygo Goes, Ferland Mendy, Endrick, Eder Militao og Raúl Asencio fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Þá tapaði Real Madrid afar óvænt á útivelli gegn Real Betis í spænsku deildinni um helgina.

Leikurinn verður spilaður á Santiago Bernabéu í Madríd.

Mourinho gaf hetju Betis sitt fyrsta tækifæri hjá Tottenham
TENGT EFNI

Mourinho gaf hetju Betis sitt fyrsta tækifæri hjá Tottenham

Real bara með tvo miðjumenn gegn Inter
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.