Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   lau 06. ágúst 2022 14:27
Auglýsingar
Pakkaferð eða flug með Icelandair á Holland - Ísland 6.september
Icelandair
Mynd: Icelandair

Nú fer að líða að ögurstundu í undankeppni Heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta, sem haldið verður í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi 2023.


Þann 6. september næstkomandi mætast Ísland og Holland á Stadion Galgenwaard vellinum í Utrecht. Þessi leikur ræður úrslitum um það hvort Ísland kemst áfram á mótið og þá munar um stuðning landa í stúkunni!

Að þessu tilefni, var Icelandair að setja í loftið flugtilboð og pakkaferð til Amsterdam og leggur þar með sitt af mörkum við að fylla stúkuna af stuðningsmönnum Íslands.

Allir sem kaupa flug eða pakkaferð með Icelandair til Amsterdam innan ferðatímabilsins 1. – 10. september, fá gefins miða frá Icelandair í Íslendingahólfið á áður nefndan leik Íslands og Hollands.

Tryggðu þér sæti tímanlega. Komdu með stuðninginn – áfram Ísland.

Linkur á upplýsingasíðu


Athugasemdir
banner
banner