Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 06. september 2019 15:20
Magnús Már Einarsson
Smalling gæti spilað í mörg ár á Ítalíu
Mynd: Getty Images
Enski varnarmaðurinn Chris Smalling segist vera til í að skoða að spila á Ítalíu næstu árin.

Smalling er á láni hjá Roma frá Manchester United út tímabilið en hann er til í að skoða að vera lengur á Ítalíu.

„Þetta er tækifæri sem bauðst mér og ég hafði mjög mikinn áhuga á því. Ég var mjög spenntur fyrir því að koma hingað," sagði Smalling á fréttamannafundi í dag.

„Þetta gerðist mjög fljótt og núna einbeiti ég mér að næsta leik, venjast hraðanum á æfingum og aðferðum þjálfarans og þá eigum við vonandi mjög gott tímabil fyrir höndum."

„Ég er að fá tækifæri hjá stóru félagi og ef það tækifæri býðst lengur og félagið er ánægt þá get ég klárlega séð fyrir mér að vera á Ítalíu til lengri tíma í framtíðinni."

Athugasemdir
banner
banner
banner