Fotbolti.net
06.09.26 - 12:31
Brynjar Ingi Erluson

Líkir Woltemade við hest - „Ég á einn frísneskan og mér finnst þeir mjög svipaðir“

Nick Woltemade

Nick Woltemade

Canon

Mynd: EPA

Luciano Spalletti, þjálfari Juventus, greip til óvenjulegrar samlíkingar þegar hann var spurður út í þýska framherjann Nick Woltemade. Hann líkti nýja leikmanninum við hestinn sinn.
Woltemade til Juventus (Staðfest)
TENGT EFNI

Woltemade til Juventus (Staðfest)

Juventus fékk Woltemade á láni frá Newcastle þar sem hann fékk lítið að spila, þrátt fyrir að enska félagið hefði keypt hann fyrir metfé á síðasta ári.

Spalletti er ánægður með nýja framherjann og líkir honum við frísneska hestinn sinn.

„Hvernig hestur er hann? Ég á einn frísneskan og mér finnst þeir mjög svipaðir. Hann er stór og tígulegur og getur verið dálítið ógnvekjandi við fyrstu sýn. Svo er hann voða ljúfur og leyfir manni að klappa sér og fara á bak. Nick kemur vel saman við liðsfélagana og er sterkur í einvígum. Hann hefur ekki hætt að brosa síðan ég kynntist honum. Nick er svo ánægður með að vera hér og það skiptir miklu máli,“ sagði Spalletti.

„Það er hægt að spila boltanum í fæturna á honum og hann er góður í samspilinu. Svo er líka hægt að senda beint fram á hann því hann er stór og sterkur. Það er ekki auðvelt að finna hvort tveggja í sama leikmanninum.“

„Þessir tveggja metra turnar eru oft góðir í að klára færin í teignum en taka minni þátt í spilinu. Hann getur bæði. Svo er hann alltaf svo glaður og líflegur og það sést líka inni á vellinum,“
sagði Spalletti enn fremur.

Woltemade mun ekki byrja gegn AC Milan í kvöld, en hann gæti fengið mínútur inn af bekknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.