06.09.26
UTAN VALLAR: Hvernig virka nýju fjárhagsreglurnar í ensku úrvalsdeildinni?
SÆVAR ÞÓR SVEINSSON
Það eru mörg nýmæli í ensku úrvalsdeildinni í ár. Líkt og önnur ár er aragrúi af nýjum leikmönnum, þrjú ný lið, nýir búningar, nýir styrktaraðilar, nýjar reglubreytingar sem snúa að leiktöfum og margt fleira. Það er ein áhugaverð nýjung sem hefur átt sér stað utan vallar fyrir þetta tímabil og tengist það fjárhagsreglum deildarinnar. Fyrir tímabilið 2015/16 voru hagnaðar- og sjálfbærnireglurnar (e. profitability and sustainability rules, betur þekkt sem PSR) innleiddar í ensku úrvalsdeildinni. Síðasta vetur kusu félögin um það að innleiða nýjar fjárhagsreglur sem ættu að leysa gömlu PSR reglurnar af hólmi. Breytingin var samþykkt með 14 atkvæðum gegn 6, sem er minnsti mögulegi meirihluti sem þurfti til þess að breyta þessum reglum. Nýju fjárhagsreglurnar, sem mætti íslenska sem leikmannahópskostnaðarreglurnar (e. squad cost ratio, betur þekkt sem SCR), munu því gilda frá og með þessu tímabili. Hér verður farið yfir hvað þessar reglur fela í sér.

